Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
63 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Upplýsingar um ríkisstofnanir Hér er aðeins sagt frá örfáum stofnunum og sögufrægum byggingum sem eru í landinu. Sögufrægar byggingar er að finna víða sem þú skalt endilega heimsækja þegar þú ferðast um landið. Alþingi Alþingishúsið á Austurvelli var reist á árunum 1880-1881. Á Alþingi eru lögin í landinu sett. Ráðhús Reykjavíkur Ráðhús Reykjavíkur er í miðborg Reykjavíkur við Tjörnina. Húsið var byggt árið 1992 og tekið í notkun árið 1994. Harpa Harpa er tónlistar- og ráðstefnuhús á austurbakka Reykjavíkurhafnar. Húsið var formlega tekið í notkun árið 2011. Hallgrímskirkja Hallgrímskirkja er 74,5 metra há kirkja á Skólavörðuholti. Kirkjuna hannaði Guðjón Samúelsson. Hún var reist á árunum 1945-1986 og kennd við sr. Hallgrím Pétursson sálmaskáld. Í kirkjunni er pípuorgel með 5275 pípum. Orgelið er 15 metrar á hæð og vegur um 25 tonn.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=