Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
62 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Jöklar á Íslandi Langjökull sem dregur nafn sitt af lengd sinni er næststærsti jökull landsins. Hæsta bunga Langjökuls er í 1450 m hæð. Stærstu skriðjöklar eru Vestri-Hagafellsjökull og Eystri-Hagafellsjökull. Hofsjökull er þriðji stærsti jökull landsins. Hann er nánast á miðju landsins og frá honum falla stórar jökulár. Hæstur er hann 1765 m. Múlajökull er stærsti skrið- jökullinn að sunnanverðu. Mýrdalsjökull hvílir á eldfjallinu Kötlu sem gosið hefur reglulega frá landnámi. Í Kötlugosum hafa orðið mikil jökulhlaup. Hæst er Hábunga 1450 m. Drangajökull er á Vestfjörðum. Hæstur er hann á Jökulbungu 925 m. Drangajökull dregur nafn sitt af sjö dröngum fremst í Drangafjalli á Ströndum. Eyjafjallajökull hvílir á eldfjalli sem síðast gaus 2010. Jökullinn gnæfir yfir Suðurlandsundirlendinu þar sem hæstan ber við himin, Guðnastein í 1660 m hæð yfir sjávarmáli. Tungnafellsjökull er lítill jökull norðvestur af Vatnajökli. Hæstur er hann 1530 m. Þórisjökull er lítill jökull suðvestur af Langjökli. Hann hvílir á móbergsstapa og er 1360 m hár. Eiríksjökull er eitt formfegursta fjall landsins og hæsta fjall vestanlands, 1675 m hátt. Stærsti skriðjökull að norðanverðu er Klofajökull. Þrándarjökull er lítill, 1248 m hár hveljökull norðaustan við Vatnajökul. Tindfjallajökull er lítil jökulbreiða í hálendi Tindfjalla. Hæstu tindarnir Ýmir (1462 m) og Ýma (1448 m) eru íslausir en í hlíðum þeirra eru brattir jöklar. Snæfellsjökull er eitt formfegursta fjall landsins og hvílir á eldfjalli. Hæstur er hann 1446 m yfir sjávarmáli.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=