Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

60 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Fróðleikur Vötn á Íslandi Þórisvatn var næststærsta náttúrulega stöðuvatn landsins þar til það var gert að miðlunarlóni fyrir virkjanir. Nú er það stærst. Þar sem vatnshæðin er mismunandi er flatarmál þess og dýpi líka mismunandi. Stærst getur það orðið 86 km². Vatnið er mjólkurlitað vegna jökulvatnsins. Þingvallavatn er stærsta stöðuvatn landsins frá náttúrunnar hendi, 83,7 km² og dýpst 114 m. Í vatninu lifa þrjár tegundir fiska, bleikja, urriði og hornsíli. Urriðinn er sérstaklega stór. Í vatninu hefur alla tíð verið góð veiði. Hálslón er miðlunarlón fyrir Kárahnjúkavirkjun. Það var myndað þegar þrjár ár voru stíflaðar, Jökulsá á Dal, Kringilsá og Sauðá. Þegar lónið er fullt er það um 57 km². Lögurinn á Austurlandi er um 35 km langur. Mesta dýpi er 112 m, þ.e. um 90 m neðan sjávarmáls. Lagarfljótsormurinn er sagður búa í Lagarfljóti. Mývatn er í um 280 m hæð yfir sjávarmáli. Þar er silungsveiði meiri en í nokkru öðru vatni landsins. Vatnið er einnig þekkt fyrir mikið og fjölbreytt fuglalíf. Hvítárvatn er við Langjökul og er eitt af stærri vötnum landsins. Úr því rennur Hvítá. Við vatnið er falleg fjallasýn. Kjalvegur liggur við vatnið. Hópið á Norðurlandi vestra er fimmta stærsta stöðuvatn landsins. Það er þó ekki nema um 9 m djúpt þar sem það er dýpst. Í Hópinu er talsvert veitt af bleikju og laxi. Langisjór er í um 670 m hæð yfir sjávarmáli. Margar eyjar eru í vatninu og er lands- lag allt umhverfis það stórbrotið. Umhverfi vatnsins er að mestu gróðurlaus auðn. Öskjuvatn varð til eftir gos í Dyngjufjöllum árið 1875. Eftir eldgosið seig miðja fjallsins og myndaðist þá Öskjuvatn, næstdýpsta vatn landsins, 220 m djúpt. Á austurbakka Öskjuvatns er gígurinn Víti. Hvalvatn er þriðja dýpsta vatn landsins, 160 m djúpt. Vatnið varð til þegar Hvalfell, fjallið framan við vatnið, hlóðst upp í eldgosi undir jökli og stíflaði dalinn. Jökulsárlón er dýpsta vatn landsins, 260 m djúpt. Það stækkar smám saman á sama tíma og Breiðarmerkurjökull hopar. Jökulsárlón byrjaði ekki að myndast fyrr en upp úr 1930. Það er fullt af ísjökum sem brotna úr jöklinum. Loðna og síld ganga inn í lónið og eltir selurinn ætið. Kleifarvatn á Reykjanesskaga er sjöunda dýpsta vatn landsins, 97 m djúpt. Vatnið varð til á milli fjalla sem hlóðust upp við gos undir jökli og lokuðu af dældir sem síðan fylltust vatni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=