Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
6 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 • Hafið umhverfis landið ; hafstraumar útskýrðir og þýðing þeirra fyrir landsmenn. • Náttúruauðlindir ; farið yfir helstu náttúruauðlindir Íslendinga og hvernig þær verða að fullunninni vöru. • Atvinnulíf ; fjallað um ólíkar atvinnugreinar og skiptingu þeirra. Einnig um samgöngur sem undirstöðu góðs atvinnulífs. • Umhverfið okkar ; farið yfir mikilvægi náttúruverndar, friðlýst landsvæði og þjóðgarða. • Landshlutar ; þar hefur landinu verið skipt í níu landshluta. Hver landshlutakafli er byggður upp á svipaðan hátt. Umfjöllun hvers landshluta hefst á sérkennum hans og korti. Því næst eru tekin fyrir landsvæði innan landshlutans og gerð ítarlegri skil. Einnig er fjallað um mannlíf, atvinnulíf og samgöngur landshlutans. • Heimabyggðin; að lokum er örstuttur kafli um heimabyggðina. Þar er forvitni nemenda gagnvart heimabyggð sinni vakin og þeim gefin verkefni til að skoða betur sitt nánasta umhverfi. Í vinnubók sem fylgir nemendabók er fjöldi verkefna þar sem unnið er frekar með hvern og einn kafla. Aftar í kennsluleiðbeiningum í hverjum kafla fyrir sig eru enn fleiri verkefni. Markmiðið með fjölbreyttum verkefnum í vinnubók og kennsluleið- beiningum er að þjálfa nemendur út frá þeim hæfniviðmiðum sem unnið er með hverju sinni. Mörg verkefni eru einstaklingsverkefni en önnur reyna á samvinnu nemenda og henta fyrir hópa- og paravinnu. Kennsluaðferðir í samfélagsgreinum Mikilvægt er að bjóða nemendum upp á fjölbreyttar leiðir til að vinna með efni bókarinnar. Þó nemenda- og vinnubók séu settar upp á svipaðan hátt skal kennari ekki láta það leiða sig frekar en hann vill. Kennarar eiga ekki að hika við að finna sínar leiðir við að koma efninu til skila enda eru leiðbeiningarnar fyrst og fremst safn hugmynda. Kennarar geta valið úr viðfangsefni og verkefnum eftir því sem við á fyrir bekk eða einstaka nemendur. Með því er komið til móts við ólíkar þarfir nemenda. Markmiðið er að nemendur upplifi að landafræðin sé skemmtileg og þá langi til að læra meira. Mikilvægt er að kennarar ræði efni kaflans við nemendur áður en vinna við hann hefst. Kennari getur farið munnlega yfir spurningar eða skrifað þær upp á töflu. Það er ekki nauðsynlegt að fara yfir allt en mikilvægast er að reyna að kveikja áhuga nemandans. Í vinnubókina er gott að vinna samhliða lestri í nemendabók. Ekki er lögð áhersla á að klára alla vinnubókina, það verður kennari að meta hverju sinni. Hægt er að láta
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=