Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

58 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Leitið hugmynda að uppskriftum að réttum sem byggja á íslensku hráefni að langstærstum hluta. Notist við villtan gróður, egg, fugla og dýr, fiska úr fersku vatni og hvers konar sjávarfang. Að sjálfsögðu má líka nýta land- búnaðarafurðir í ótal rétti. Safnið saman uppskriftunum og útbúið bók eða heimasíðu með uppskrift og myndum. Jafnvel er hægt að slá upp veislu með íslenskum réttum og bjóða ættingjum í mat. 16. Förukonan Förufólk sem átti hvergi heima reikaði oft á milli bæja í gamla daga. Það fékk gjarnan gistingu hjá góðu fólki á flakki sínu. Oftast hafði förufólkið sögu að segja og gegndi svipuðu hlutverki og fjölmiðlar gera í dag. Nú skuluð þið skipta bekknum í hópa og skiptast á að leggja gátur fyrir aðra meðlimi hópsins. Förufólkið leggur örnefnagátu fyrir aðra og staldrar ekki við nema heimilisfólkið eða hópurinn í þessu tilfelli geti ráðið gátuna. Förufólkið fer víða þannig að örnefnin geta verið hvaðanæva af landinu. Segjum sem svo að þið séuð í hlutverki förukonunnar eða förumannsins, þá skráir sá fyrsta stafinn í örnefninu fyrir hópinn og teiknar jafnmörg strik fyrir alla stafina sem á eftir koma. Ef fyrsti stafur kemur oftar fyrir í nafninu er hann skráður á viðeigandi strik. Geta þarf upp á öðrum stöfum í örnefninu. Réttar ágiskanir skráir föru- konan/-maðurinn á viðeigandi strik. Fyrir hverja ranga ágiskun teiknar föru- fólkið eitt strik í mynd af sjálfri sér. Um leið og myndinni er lokið er förufólkið farið! 25 Ísland hér búum við |Vinnublöð | © Menntamálastofnun 2019 | 0000 ?? VINNUBLAÐ ? Hér vantaði bara einn staf í örnefni þegar myndinni var lokið og förukonan kvaddi. S A M L F T O D G H N K I L I R

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=