Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
57 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 10. Ferðavinningur Þú hefur unnið ferð að eigin vali á hvaða áfangastað sem er innanlands. Hvert myndir þú fara? Hvað myndir þú helst vilja skoða? Hvað myndi svona ferð kosta? Gerðu ritgerð eða semdu frásögn af ferðalaginu. 11. Hver er staðurinn? Þrjú systkini vita ekki hvar þau eru stödd. Þau eru í álögum og þríhöfða risi þarf að átta sig á því hvar hann er staddur. Þrír úr bekknum fara fram á meðan hinir velja risanum stað. Systkinin þrjú koma inn og snúa bökum saman og leika risann, hvert sitt höfuðið. Risinn snýr einu höfðinu að hópnum. Höfuðin skiptast á að bera upp spurningar og aðeins má svara játandi eða neitandi. Þau eiga að reyna að átta sig á hvar þau eru stödd með því að spyrja um staðhætti, landshluta eða annað sem gæti komið að gagni. Takist þeim að giska á réttan stað losna þau úr álögunum. 12. Þjóðsögur leiknar Finnið þjóðsögu frá landahlutanum og útbúið leikþátt úr frá sögunni. Hægt er að setja leikþáttinn á svið eða jafnvel taka upp leikþátt stafrænt. 13. Landshornapóstur Nemendur hafa samband við ættingja og vini út um allt land og biðja um kort með myndum frá þeirra landshluta og jafnvel einhverjar upplýsingar um hann. Þegar kortin fara að skila sér í skólann er hægt að búa til úr þeim óróa eða tengja þau við Íslandskort. Nemendur fá fjölskyldu sína til að aðstoða við að finna ættingja sem gætu sent þeim upplýsingar. 14. Verndum landið! Hvaða skaða geta þeir valdið í náttúrunni sem ekki kunna að ganga um landið, gæta ekki að sér í akstri, ganga ekki frá eftir sig eða styggja fugla um varptímann? Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir spjöll á umhverfi og náttúru. Nemendur draga saman atriði af þessu tagi og sýna með skýrum tilmælum til ferðalanga hvernig á að ganga um landið. Safnið saman tilmælum að því hvernig ferðalangar eiga að ganga um landið. Hvernig er hægt að koma þessum tilmælum til ferðafólks? Slagorð, bæklingur, upplýsingaskilti, heimasíða eða annað sem ykkur dettur í hug. 15. Matreiðslubók Sumar matvörur fáum við beint úr náttúrunni en annað þarf að rækta. Sumt er flutt inn frá öðrum löndum en annað er búið til á Íslandi eða sótt í íslenska náttúru.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=