Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

56 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 • umhverfisvernd • áhugaverða og fallega staði • örnefni • þjóðsögur og aðrar sagnir • söguna • hvað er í fréttum • hvaða atvinna er í boði • hvernig heimabyggðin er skipulögð • byggingar og mannvirki • útivist • frægt fólk frá landsvæðinu t.d. skáld, íþróttafólk eða annað. 5. Spurningakeppni Búa til Kahoot spurningakeppni (www.kahoot.it www.kahoot.com ) með spurningum úr bókinni. Hægt að gera mjög fjölbreytt og skemmtilegt verkefni þar sem notaðar eru myndir, texti og teikningar sem tengjast efninu. Líka er hægt að láta nemendur í hópum búa til sitt eigið Kahoot þar sem hinir nemendurnir taka þátt í leiknum. Hver hópur gæti gert spurningar úr sínum landshluta. 6. Ferðalag um Ísland Skipuleggja ferð fjölskyldu umhverfis Ísland. Hvað á að skoða og hvar á að gista? Hvað kostar að ferðast hringinn í kringum Ísland? 7. Ferðaskrifstofa. Nemendur eiga von á fjölskyldu frá Perú sem ætlar að stoppa hér í 10 daga. Hvað skoða þau, hvar gista þau, hvað mæla þau með að þau skoði, hvað kostar þessi ferð þeirra? 8. Hvað er í fréttum? Hvað er að frétta af landsbyggðinni? Skoðið saman í hópum fréttir frá Íslandi og greinið hvaðan þær koma. Eða jafnvel að nemendur hjálpast að við að finna fréttir frá hverjum landshluta. Búa saman til fréttablað, sjónvarpsþátt eða útvarpsþátt frá svæðinu. Hægt er að skoða fréttasíður frá landshlutanum á netinu. 9. Ferðabæklingur Útbúa ferðamannabækling þar sem tekin eru saman helstu einkenni vinsælla ferðamannastaða. Kort teiknað og merkt inn á það hvar þeir eru.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=