Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

55 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Fjölbreytt verkefni 1. Fjölskylduferð um Ísland Nemendur skipuleggja ferð um Ísland annaðhvort í hóp eða hver og einn. Nemendur velja sér stað/staði sem þá langar til að skoða. Skrifa niður kynningu á sínum stað og finna mynd við. Síðan er mögulegt að vera með kynningar fyrir bekkinn. Hægt er að gefa allar kynningarnar út í bæklingi. Einnig má útbúa veggspjald sem staðir eru merktir inn á og kynning hengd til hliðar. Tilbrigði við þetta verkefni væri að gefa bæklinginn síðan út á ensku eða dönsku. 2. Veggmynd af Íslandi Til að festa hálendi og láglendi enn frekar í minni nemenda er hægt láta bekkinn vinna veggmynd þar sem unnið er með stórt kort sem hefur verið teiknað upp á maskínupappír. Nemendur setja límrönd með fram ströndinni og strá sandi á límið. Síðan er notaður silkipappír í ýmsum litum; rifnir niður litlir bútar í grænum lit og límdir á myndina til þess að afmarka láglendi og sama er gert við hálendi og jökla með viðeigandi litum. 3. Líkan af Íslandi Skemmtilegt er að vinna saman Íslandskort úr pappamassa á tréplötu. Teiknið útlínur Íslands á tréplötu. Útbúið pappamassann með því að blanda saman veggfóðurslími og niðurrifnum dagblöðum. Landslag Íslands er síðan mótað með hliðsjón af landakorti. Reynt að sýna hálendi og láglendi. Jöklar mótaðir og hæstu fjöll. Pappamassi látinn þorna. Líkanið er síðan málað í réttum litum. Hálendi, láglendi, jöklar, vötn, sjór og svo framvegis. 4. Kynning á hverjum landshluta Hverjum bekk skipt í hópa sem kynna sér einn landshluta. Nemendur afla sér upplýsinga um sinn landshluta og velja sér form á því hvernig þeir kynna fyrir öðrum. Kynningin gæti verið Powerpoint, stuttmynd, fréttaþáttur, ferðaskrif- stofa, útvarpsþáttur, vefsíða eða leikrit um söguverðan stað í landshlutanum. Til dæmis mætti skoða: • landslag • kort • upplýsingar á kortum • jarðfræði

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=