Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
53 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Heimabyggðin Bls. 86–87 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Hugsunin með því að taka fyrir heimabyggðina er að kynnast betur sínu nánasta umhverfi. Hugmyndin er sú að nemendur hjálpist að við að gera úttekt á heima- byggð sinni. Þau hjálpast að við að skoða ýmsa þætti og setja fram á skapandi hátt. Hugmynd væri að gera vefsíðu þar sem öllum upplýsingum og myndum er komið inn á skipulegan hátt og jafnvel gæti næsti árgangur bætt inn á síðuna næsta ár. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemendi geti: • greint samhengi heimabyggðar við umhverfi, sögu, menningu og félagsstarf. • tekið afstöðu til málefna sem varða heimabyggð með því að vega og meta ólíka kosti. • tekið þátt í og sýnt hæfni í samvinnu er lýtur að umbótum í heimabyggð. ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað er heimabyggð? • Hvað er hverfi? Hver er munurinn á heimabyggð og hverfi? • Hversu vel þekkir þú heimabyggðina þína? • Þekkir þú söguna frá því að byggð hófst í þinni heimabyggð? • Hvaða þjóðsögur og örnefni þekkja nemendur? ÚRVINNSLA Kveikjur Hægt að útbúa verkefni þar sem nemendur gera sér grein fyrir því að það er gott að þekkja það sem er næst manni og halda síðan út í heiminn til hins fjarlæga. Þekkja þau hvað heimsálfan þeirra heitir? Umræður Náttúra/landslag Ár, vötn og tjarnir í heimabyggð okkar, skoða þær og gera samantekt, lífríki o.fl. Jarðfræði Taka saman það helsta … Bæjarfjallið Hvert er bæjarfjallið þitt? Geturðu nefnt fleiri fjöll í þínu umhverfi? Örnefni Kortleggja örnefni …
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=