Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
52 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Hálendið Bls. 82–85 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Sýna nemendum ástand vega af vef vegagerðarinnar (Hvaða vegir eru lokaðir á þessum árstíma? Af hverju eru þeir lokaðir? Væri hægt að hafa Sprengisand og Kjöl opna allt árið?) http://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og- vedur/allt-landid-faerd-kort/ • Sýna nokkrar myndir af fallegum náttúruperlum af hálendinu og ræða um víðerni og náttúrufegurð. Oft er talað um að Íslands sé síðasta ósnerta víðátta Evrópu. Hvers virði er hálendið okkar? Umræður • Af hverju býr enginn á hálendinu? (gróður, veður, samgöngur). Hvað er hægt að gera á hálendinu? (vetur, sumar). • Virkjanir á hálendinu. Ræða um kosti og galla. Hvers vegna eru svona margar virkjanir á hálendinu? Til hvers þurfum við virkjanir? ÚTILISTAVERK • Fangar frelsisins , var afhjúpað á Hveravöllum 1998. Listaverkið er eftir Magnús Tómasson og saman- stendur af rimlum og steinum. Innan rimlanna eru tvö steinhjörtu, annað er sótt til Súðavíkur í fæðingarsveit Höllu, hitt að Hlíð í Hrunamanna- hreppi á fæðingarstað Eyvindar FRÓÐLEIKSKORN Hver á hálendi Íslands? Samkvæmt 2. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta er íslenska ríkið eigandi lands og hvers kyns landsréttinda og hlunninda í þjóðlendum sem ekki eru háð einkaeignarrétti. Forsætisráðherra fer með forræðið fyrir ríkið. ÞJÓÐSÖGUR / ÍSLENDINGASÖGUR • Fjalla-Eyvindur • Reynistaðabræður – Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifaði bókina Draugaslóð og nýtti sér þessa sögu þar. Færði hana í nútímastíl. • Systkinin í Ódáðahrauni • Upp mínir sex í Jesú nafni
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=