Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
50 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Reykjavík og nágrenni Bls. 78–81 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Sýna loftmynd af höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi, hvers vegna ætli rúmlega 70% landsmanna búi á þessu svæði? • Kahoot keppni með myndum af frægum byggingum (eða skólum) á höfuðborgarsvæðinu. • Hvernig kemst ég í miðbæinn? Láta nemendur koma með hugmyndir um hvernig hægt er að ferðast frá þeirra sveitarfélagi í miðbæ Reykavíkur (með almenningssamgöngum). • Hvað heita sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu en þau eru alls sex talsnis? Ræða um stærð höfuðborgarinnar í samanburði við aðrar höfuðborgir í heiminum. ÚTILISTAVERK Af miklum fjölda listaverka víða á höfuðborgarsvæðinu má nefna eftirfarandi: • Óþekkti embættismaðurinn eftir Magnús Tómasson, stendur við Tjörnina. • Sólfarið við Sæbraut eftir Jón Gunnar Árnason. • Þúfan , umhverfislistaverk í Örfirisey, eftir Ólöfu Nordal. • Friðarsúlan í Viðey er ljóskastari japönsku listakonunnar Yoko Ono, Imagine Peace Tower, sem varpar sterkri ljóssúlu upp í himininn samfellt frá sólarlagi til miðnættis frá fæðingardegi eiginmanns hennar Johns Lennon, 9. október, til dánardags hans, 8. desember. • Styttur eftir Einar Jónsson af Ingólfi Arnarsyni á Arnarhóli, Jóni Sigurðssyni á Austurvelli og Jónasi Hallgrímssyni í Hljómskálagarði. • Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti (40 ár í byggingu) • Perlan í Öskjuhlíð (fyrrum vatnsgeymar höfuðborgarbúa)
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=