Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

49 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Suðurnes Bls. 74–77 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Brúin milli heimsálfa er sérstök, á hvaða hátt? • Sýna mynd af Bláa lóninu og ræða um það hvers vegna vinsældir lónsins eru svona miklar meðal erlendra ferðamanna. ÚTILISTAVERK • Þotuhreiðrið . Við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er listaverk eftir listamanninn Magnús Tómasson. Er það risastórt egg úr stáli sem trjóna þotu er að brjótast út úr eins og ungi úr eggi. Það stendur á íslensku grjóti. • Regnboginn er listaverk við Flugstöð leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli eftir Rúrí. Það er hæsta listaverk á Íslandi, 24 metra hátt. Litir regnbogans eru úr 313, gulum rauðum, grænum og bláum einingum úr gleri. • Geirfuglinn . Bronsstytta af geirfugli eftir bandaríska myndlistarmanninn Todd McCrain stendur á Valahnúki og horfir fuglinn til Eldeyjar. FRÓÐLEIKSKORN Tyrkjaránið 1627 Sumarið 1627 gerðust hræðilegir atburðir á þremur stöðum á Íslandi. Þá komu sjó- ræningjar á skipum frá Alsír, rændu fólki á Austfjörðum, Grindavík og í Vestmanna- eyjum og seldu í þrældóm í Alsír. Tæpum tíu árum síðar, eftir að safnast hafði fé á Íslandi og í Danmörku, var greitt lausnar- gjald fyrir 34 þræla frá Algeirsborg. Þeir sneru aftur heim og sögðu sögu sína. Þar á meðal var Guðríður Símonardóttir oft nefnd Tyrkja-Gudda sem síðar giftist Hallgrími Péturssyni, presti og einu mesta sálmaskáldi Íslendinga fyrr og síðar. Einhverjum tókst að safna fé og kaupa sig lausa. Nokkrar samtímaheimildir eru til um þessa atburði. Reisubók Guðríðar Símonardóttur, söguleg skáldsaga um Tyrkjaránið, eftir Steinunni Jóhannesdóttur kom út árið 2001. ÞJÓÐSÖGUR • Frá marbendli • Rauðhöfði • Grímshóll • Vogadraugurinn

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=