Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
48 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Skeiðarársandur Skeiðarársandur er einn hinna miklu sanda á Suðurlandi. Það sem hefur mótað sandflæmið eru jökulárnar úr Vatnajökli sem renna um sandinn til sjávar. Á árum áður voru árnar á sandinum mikil hindrun fyrir ferðamenn, sérstaklega á sumrin þegar jökullinn bráðnaði því þá jókst vatnið í ánum. Árið 1972 var hafist handa við að brúa Skeiðará. Skeiðarárbrúin var opnuð 1974 og var þá lengsta brú landsins, 904 metrar. Þá fyrst var kominn vegur í kringum landið sem kallast Hringvegurinn eða Þjóðvegur eitt. Nú liggja brýrnar að mestu leyti yfir sanda enda hafa jöklarnir minnkað og rennsli ánna dregist mikið saman. Eldmessan Séra Jón Steingrímsson (1728–1791) söng hina frægu Eldmessu þann 20. júlí árið 1783 í kirkjunni á Klaustri. Telja margir að sú messa hafi stöðvað hraunstrauminn sem þá ógnaði byggðinni. Staðurinn þar sem hraunstraumurinn stöðvaðist heitir nú Eldmessutangi. ÞJÓÐSÖGUR • Dansinn í Hruna • Selshamurinn • Jóra í Jórukleif • Gilitrutt
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=