Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

47 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Suðurland Bls. 66–73 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Gullni hringurinn – sýna kort af svæðinu. Hvers vegna haldið þið að erlendir ferðamenn heimsæki flestir Gullna hringinn? Hvaða staðir eru á þessari leið? • Sýna myndband um Vestmannaeyjagosið og ræða um eldgos á Suðurlandi https://www.youtube.com/watch?v=d6Ef9tOaq6A • Af hverju eru oftar eldgos á Suðurlandi en á Vestfjörðum t.d.? • Suðurströndin. Af hverju eru svona fá sjávarþorp við suðurströnd landsins? ÚTILISTAVERK • Sólalda . Við Sultartangavirkjun er að finna glæsilegt listaverk, Sólölduna, eftir Sigurð Árna Sigurðsson. Á stöðvarhúsinu eru sautján stálplötur sem standa út úr veggnum. Stálplöturnar eru í mismunandi lengdum og mynda ölduform eða orkubylgju sem passar vel við þennan stað. • Hávaðatröllið er lágmynd á framhlið stöðvarhússins eftir Sigurjón Ólafsson og fyrir framan það er einnig verkið Hávaðatröllið eftir hann. • Voyage , eða ferðalag, er koparstytta sem hallar sér fram og horfir út á sjóinn við Reynisfjöru. Hún á sér systurstyttu í hafnarbænum Hull í Englandi en mikil tengsl hafa verið milli bæjanna á síðustu árhundruðum. Steinunn Þórarins- dóttir er listamaðurinn. FRÓÐLEIKSKORN Lakagígar og Eldhraun Árið 1783 varð eitt mesta eldgos á Íslandi frá því að land byggðist. Þá gaus á 25 km langri gossprungu vestan Vatnajökuls. Á sprungunni mynduðust um 135 gígar sem síðar fengu nafnið Lakagígar en gosið kallaðist Skaftáreldar. Gosinu fylgdu miklir jarðskjálftar og fór mikil aska og gosgufa upp í loftið sem barst yfir Ísland, til Evr- ópu og víðar. Þessu fylgdi mikil mengun sem eitraði gróður. Í kjölfarið drapst stór hluti af búpeningi sem leiddi til hungursneyðar meðal landsmanna og margir dóu. Þessi mestu harðindi sem dunið hafa yfir Íslendinga voru kölluð móðuharðindin, vegna móðunnar eða öskumengunarinnar. Hraunið sem rann úr Lakagígum er mjög stórt og fór yfir marga bæi. Seljavallalaug Seljavallalaug er elsta sundlaug landsins sem enn er heil. Hún er á afskekktum stað undir Eyjafjöllum og þangað er um 15-20 mínútna gangur. Laugin var byggð árið 1923 til að kenna landsmönnum að synda. Hún er að hluta til náttúrlaug en kletta- veggur er ein hlið laugarinnar. Laugin er 25 m löng og byggð við heita uppsprettu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=