Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
46 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Austurland Bls. 62–65 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Austurland er vogskorið. Hvað merkir það? • Hvað geta nemendur talið marga firði á Austurlandi. • Hvað þekkja þau af kaupsstöðum á Austurlandi. • Sýna loftmynd af Egilsstöðum og láta nemendur finna bæinn á landakorti. Hvað er sérstakt við þennan kaupstað? (Er ekki við sjó.) ÚTILISTAVERK • Hringiða – Við Hálslón er að finna listaverkið Hringiðu eftir Jónínu Guðna- dóttur. Verkið er unnið úr grjóti frá Kárahnjúkasvæðinu. Hringiða er ekki bara listaverk, heldur líka útsýnispallur þar sem sér yfir stóran hluta Hálslóns, til Snæfells, yfir stíflumúrinn og niður í Jökulsárgljúfur. Þvermál listaverksins er jafn breitt þvermáli einnar túrbínu í Fljótsdalsstöð. • Eggin í Gleðivík er verk eftir listamanninn Sigurð Guðmundsson. Listaverkið er 34 egg sem eru nákvæm eftirlíking eggja valinna íslenskra varpfugla. Eggin eru öll af svipaðri stærð nema egg lómsins sem er stærst. En lómurinn er ein- kennisfugl fyrir svæðið. • Hvernig gengur? Símaklefi Guðjóns Ketilssonar frá 2004 er minnisvarði um komu sæsímastrengsins til Seyðisfjarðar 1906. • Hljóðskúlptúrinn Tvísöngur . Hljóðskúlptúrinn Tvísöngur frá 2012, eftir þýska listamanninn Lukas Kühne, er staðsettur fyrir ofan Seyðisfjarðarbæ. Hann samanstendur af fimm sambyggðum, steinsteyptum hvelfingum af mismun- andi stærð, hver hvelfing fyrir sig hefur eigin tíðni sem samsvarar einum tóni í fimmundarsöng og virkar sem magnari fyrir þann tón. FRÓÐLEIKSKORN Norræna Í Norrænu, skipinu sem siglir frá Seyðisfirði til Færeyja og Danmerkur, rúmast 1500 farþegar og 800 bílar. Ferjan er 164 m að lengd, 30 m að breidd og starfs- menn eru 120. Það tekur um 50 klst. að sigla frá Íslandi til Danmerkur. ÞJÓÐSÖGUR • Skrúðsbóndinn • Álfakóngurinn í Seley • Ormurinn í Lagarfljóti • Naddi
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=