Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

45 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Norðurland eystra Bls. 58–61 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Yfir hvaða svæði nær Norðurland eystra? Hvaða kaupsstaði má finna í lands- hlutanum? • Hafa nemendur séð þessa staði? Mývatn, Dettifoss, Goðafoss í Skjálfandafljóti, • Sýna myndir frá Akureyri. Hvaða kaupstaður er þetta? Hvað er hægt að gera á Akureyri? Hvað hafið þið gert á Akureyri? • Hvaða íþróttafélög þekkið þið á Norð-Austurlandi? ÚTILISTAVERK • Fjöldi listaverka er á Akureyri sem m.a. má finna á eftirfarandi vefslóð http://www.visitakureyri.is/static/files/2012-VISIT/pdf/utilistaverkakort- lokaskjal-web.pdf • Heimskautagerði á Melrakkasléttu (Arctic-henge) á að verða risastórt sólúr. Í listaverkinu verða styttur 72 dverga. Hver þeirra táknar fimm daga í árinu og nöfn þeirra eru að mestu úr Völuspá. Þar eru einnig geislasteinn, pólstjörnu- steinn, bendisteinn og hádegissteinn. Framkvæmdir hófust árið 2005 og er enn ekki lokið. FRÓÐLEIKSKORN Hvalir á Skjálfanda við Húsavík. Á Skjálfandaflóa hafa sést fleiri hvalategundir en annars staðar við strendur Íslands og er ekki óalgengt að 8 til 10 tegundir sjáist þar á sumrin. Á Húsavík er hvalaskoð- unarsafn og þar er starfræktur hvalaskóli. Hvalaskóli Hvalasafnsins er verkefni sem miðar að því að fræða nemendur í leik-, grunn-, framhalds- og háskóla á svæðinu um hvali og lífríki þeirra við Ísland. ÞJÓÐSÖGUR • Djákninn á Myrká • Grímseyingurinn og bjarndýrið • Þorgeirsboli • Bakkabræður

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=