Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

44 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Norðurland vestra Bls. 54–57 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Sýna myndir af hestum og ræða um landbúnað. • Skoða myndband af stóðréttum og ræða um íslenska hestinn. Hvað er sérstakt við hann? Gangtegundir, útflutningur, hrossarækt. ÚTILISTAVERK • Laupur eftir Erlend Magnússon er á Bjarmanesi á Skagaströnd ofan við fjöruna. Listaverkið stendur á fögru stuðlabergi sem kemur úr Spákonufelli, ofan við bæinn. • Goð og gróður eru um 30 listaverk úr járni í miðbænum á Skagaströnd. Höfundur er Erlendur Finnbogi Magnússon. Verkin hefur hann unnið úr gömlu efni frá sjósókn, landbúnaði og öðrum atvinnugreinum. FRÓÐLEIKSKORN Ísbirnir á Íslandi Ísbirnir hafa flækst til Íslands allt frá því að land byggðist. Yfirleitt tengjast komur ísbjarna hafís við landið. Elsta frásögn um komu ísbjarna er frá Vatnsdal í kringum um 890. Þar á að hafa verið birna með tvo húna. Varð þá til örnefnið Húnavatn við Húnafjörð. Talið er að um 500 ísbirnir hafi komið til landsins. Drangey Í Drangey hafðist Grettir Ásmundarsson við síðustu ár sín ásamt bróður sínum og þræl. Sagt er að eitt sinn hafi eldurinn slokknað hjá þeim. Þeir höfðu engan bát og synti Grettir því í land og sótti eld að Reykjum. Sundið hefur verið kallað Grettis- sund og þótti mikið þrekvirki. ÞJÓÐSÖGUR • Vígð Drangey • Óskasteinninn í Tindastóli • Galdra-Loftur • Sagan af Jóni óhrædda

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=