Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
43 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Vestfirðir Bls. 50–53 ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR • Hvað þekkja nemendur í þessum landshluta? Skrá niður allt sem nemendum dettur í hug. • Sýna kort af Vestfjörðum. Hvað er sérstakt við landslagið á Vestfjörðum? Skoða myndir af fjöllum á Vestfjörðum sem eru snarbrött en flöt að ofan. • Hvar haldið þið að flestir búi á Vestfjörðum? • Sýna vetrarmynd af vestfirskum bæ þar sem allt er á kafi í snjó og ræða um veðurfar á Vestfjörðum • Sýna myndband af vefnum https://www.westfjords.is/is/upplfdu/myndbond um ýmislegt sem hægt er að skoða á Vestfjörðum. ÚTILISTAVERK • Kræktur en þar hefur stórum öngli verið krækt í höfnina á Bíldudal. Verkið var sett upp sem hluti af myndlistarsýningunni Places/Staðir í júlí 2016. • Listasafnið í Selárdal Í Selárdal við Arnarfjörð er listasafn Samúels Jónssonar, listamannsins með barnshjartað. Samúel málaði mikið sem ungur maður. Í Selárdal er að finna stærri listaverk sem hann gerði. Það er þess virði að koma við í Selárdal á ferðalagi um landið. FRÓÐLEIKSKORN Látrabjarg og Rauðisandur Á sunnanverðum Vestfjörðum er Látrabjarg, eitt mesta sjávarbjarg á Íslandi. Það er mikið fuglabjarg og verpa þar margar tegundir sjófugla. Fyrir austan Látrabjarg er Rauðisandur, sem dregur nafn sitt af víðáttumiklum skeljasandi á ströndinni. Sandurinn er ríkur af hörpudisksmulningi sem veldur hinum rauðgula lit. Í sólskini og björtu veðri er sem sandurinn glói. Á Rauðasandi er oft mikið um seli. Vestasti oddi landsins er í Látrabjargi og heitir Bjargtangar. Nyrst á Vestfjörðum eru Hornstrandir og Strandir eru á austanverðum Vestfjarðar- kjálkanum. ÞJÓÐSÖGUR • Guðmundur biskup góði vígir Látrabjarg • Þjóðólfur og Þuríður sundafyllir • Sendingin og séra Jón í Tröllatungu • Nítján útilegumenn
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=