Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

40 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Stærðfræði • Í vinnubókinni eru nokkur verkefni tengd stærðfræði. M.a. hvað kostar að sigla með Norrænu, hvað kostar að fara í hvalaskoðun? Upplýsingatækni • Setja upp í tölvum allskonar bæklinga, kort eða búa til bækur um efni sem valin eru. • Búa til myndbönd um landshluta; kynningarmyndband, fréttaþátt, ferða- kynningu, ferðalýsingu, ferðasögu, unglingaþátt, rapplag í GarageBand. • Forritun: Setja stórt landakort á gólfið og forrita Sphero til að fara á milli staða á landinu. List og verkgreinar • Myndmennt – teikna, mála, leira eða annað. • Kynna sér listaverk í landshlutunum – sjá inni á hverjum landhluta. • Heimilisfræði – elda saman þjóðarrétti, fiskrétti þar sem Ísland er landbúnaðar og fiskveiðiþjóð. • Smíði: Búa til líkan af hverjum landshluta og setja svo saman í stórt líkan af landinu. Náttúrufræði • Skoða fuglalíf í hverjum landshluta, dýralíf, hvaða villtu dýr lifa á landsvæðinu? • Taka land í fóstur og hreinsa til. Samfélagsgreinar – lífsleikni • Íbúar í héraðinu, er fækkun/fjölgun íbúa? • Hvað eru margir grunnskólar í landshlutanum? Nemendafjöldi í skólunum. Staðsetja skólana á korti. • Hefur einhver í bekknum búið í þessum landshluta? Segja frá hvernig lífið þar er öðruvísi en hér. • Skiptir máli hvar við búum á landinu? Hvar teljið þið að sé gott að búa og hvers vegna.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=