Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
4 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Til kennara Námsefnið Ísland, hér búum við er ætlað miðstigi grunnskóla. Námsefnið samanstendur af: • Grunnbók fyrir nemendur. • Vinnubók fyrir nemendur. • Kennsluleiðbeiningum með ítarefni á vef Menntamálastofnunar. • Hljóðbók á vef Menntmálastofnunar. • Svör við verkefnum á læstu svæði Menntamálastofnunar. Kennsluleiðbeiningarnar eru einfaldar og skýrar. Þær byrja á almennum ráðum og ábendingum. Næst fylgja hugmyndir og ítarefni um sérhvern kafla bókarinnar. Víða í þeim köflum er að finna ábendingar um ítarefni til ljósritunar og krækjur til að nálgast tengt efni. Nálgunin við hvern og einn kafla kennslubókar er sem hér segir: • Kaflinn ; örstutt útlistun á efni hans fyrir kennara. • Tengsl við aðalnámskrá ; þar koma fram þau hæfniviðmið sem gengið er út frá. • Hugtök ; helstu hugtök kaflans er mikilvægt að vinna með og ræða áður en farið er að lesa og vinna með efnið í vinnubókinni. • Kveikjur og umræður ; kennurum gefnar hugmyndir til að hefja umræðu um viðfangsefni kaflans og kveikja áhuga nemenda á námsefninu. • Úrvinnsla efnisins ; hugmyndir að úrvinnslu efnisins. Þar má finna hugmyndir af myndrænni útfærslu á efninu fyrir nemendur. Ítarefni byggir að miklu leyti á hópavinnu. • Fróðleikur ; viðbótarlesefni til að vinna með sem m.a. rúmaðist ekki í grunnbók. Viðbótarefni er ekki að finna í hverjum kafla fyrir sig. Í inngangskafla um landshluta í kennsluleiðbeiningum eru hugmyndir að því hvernig samþætta má landshlutakaflana við ólíkar námsgreinar. Von er til þess að kennarar geti nýtt sér viðbótarefni til að glæða kennsluna lífi og nálgast efnið frá ólíkum áttum. Í hverjum og einum landshlutakafla er síðan eftirfarandi nálgun: • Umræður og kveikjur ; til að leggja fyrir nemendur. • Listaverk ; þar eru valin útilistaverk til að fjalla um og vinna með. Valið á lista- verkunum er algerlega handahófskennt. Ef kennarar hafa áhuga á að vinna frekar með þennan þátt geta þeir valið það sem þeim sýnist annað en það sem bent er á. • Fróðleikskorn ; líkt og í fyrri köflum bókarinnar er þarna að finna viðbótarlesefni til að vinna með. • Þjóðsögur ; sem tengjast landshlutanum valdar af handahófi. Aftast í kennsluleiðbeiningum má finna hugmyndir að stærri verkefnum, þemaverkefnum og samþættum verkefnum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=