Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
39 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Upplýsinga- og tæknimennt Í hverjum landshluta má: • Fara inn á vefsíðu ferðamálaráðs og skoða hvar eru aðal ferðamannastaðirnir og gera kynningju um þá. • Finna áhugaverða staði fyrir börn t.d. söfn, leiksvæði, dýragarð. • Finna alla grunnskóla og merkja þá inn á kort. • Finna heitar náttúrulaugar og merkja þær á kort og jafnvel setja inn myndir af þeim. Hægt að gera þetta í tölvu eða á veggspjald. • Fara inn á vef Vegagerðarinnar ( http://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/vefmyndavelar/ ) og skoða vefmyndavélar og skrá niður hvernig færð og vegir eru á þeim tíma sem verkefnið er unnið. Hvaða vegir eru lokaðir? Er snjór á veginum? Hversu mikil umferð er um vegina? Hægt er að teikna kort eða prenta út vegakort og merkja ástand vega inn á kortið. • Búa til myndbandskynningu um sögufrægan stað í viðkomandi landshluta. • Skipuleggja þriggja daga ferð með erlenda skólakrakka. Þarf að koma fram ferðalýsing, hvað á að skoða, gisting, afþreying o.fl . Gera dagskrá og leiðar- lýsingu. • Búa til Kahoot spurningar og leggja fyrir aðra nemendur. • Búa til ferðabækling um vinsæla ferðamannastaði (einnig hægt að gera sérhæfðan bækling, t.d. um sundstaði eða söfn í landshlutanum). • Finna þjóðsögu, eða Íslendingasögu sem tengist svæðinu, búa til myndasögu eða stuttmynd. • Velja eitt bæjarfélag eða þorp og búa til myndasýningu um athyglisverða staði í bænum. • Búa til leiðarlýsingu milli tveggja staða. Þar þarf að koma fram hvaða leið er farin og hvað hún er löng, hvernig færðin og veðrið er, hvaða bæi er keyrt í gegnum, hvar er hægt að stoppa og fá sér að borða, hvað væri hægt að skoða á leiðinni o.s.frv. • Leita á netinu að myndum af merkum byggingum. Hægt að búa til kynningju, bækling eða ljósmyndasýningu af byggingunum. • Finna tjaldsvæði og afþreyingu í kringum það, hvað gestir á tjaldsvæðinu gætu haft fyrir stafni eina helgi. Íslenska • Ljóðatengt verkefni. • Ritun – heimildaritgerð. • Semja texta í bæklinga ef þeir eru búnir til og brotnir um. • Þjóðsögur frá hverjum landshluta. • Vinna með örnefni, finna skrítin bæjarnöfn á korti, finna örnefni tengd dýrum eða annað.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=