Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
38 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Landshlutar Bls. 44–45 UM KAFLANN OG LANDSHLUTAKAFLANA • Hvað þarf maður að vita um land til að þekkja land? Í upphafi umfjöllunar um landshluta þarf að fara vel yfir skiptingu þá sem notast er við í bókinni. • Landshlutar eru allir kynntir til sögunnar á sama hátt, fjallað um atvinnulíf, mannlíf og samgöngur. Kennari getur farið fjölbreyttar leiðir í úrvinnslu lands- hlutanna en hér í kennsluleiðbeiningum er hugmyndabanki að útfærslu fyrir þá alla í þessum hluta. • Hér er talinn upp fjöldinn allur af hugmyndum að útfærslu sem samþættist inn í aðrar námsgreinar og er það val kennara hvort og hvernig hann vill nýta sér þessar hugmyndir. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Landafræðin fjallar um breytileg lífsskilyrði fólks í heiminum með hliðsjón af víxlverkun manns og náttúru. Reynsluheimur – hæfnin til að skilja veruleikann þar með talið • Jörðin, heimabyggðin og staða Íslands og saga. • Náttúruskilyrði, náttúruferlar og auðlindir. • Kortalæsi, sögulæsi. Hæfniviðmið • Að nemandi geti gert grein fyrir einkennum og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu og sögu landsins, breytilegrar menningar, trúar og lífsviðhorfa. ÚRVINNSLA Kortavefsjá Hér eru dæmi um verkefni sem hægt er að velja úr þegar unnið er með hvern landshluta. Við vinnu við landshluta Íslands má á Kortavefsjá sem finna má á vef Menntamálastofnunar https://vefir.mms.is/kortavefsja/ Þar eru myndir og fróð- leikur um eyjar, fjöll, vötn, jökla, þéttbýlisstaði, ár, fossa og friðlýst svæði innan hvers landsfjórðungs. Myndmennt : • Teikna upp kort af öllu landinu og merkja landshlutann inn á kortið, helstu byggðarlög, fjöll, jökla, ár o.fl.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=