Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
37 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 FRÓÐLEIKUR Endurvinnsla Allt sem við eigum, öll hús, bílar, húsgögn, matur, föt og dót er búið til úr hráefni sem sótt er í náttúruna, t.d. í jörðina eða skóginn. Þetta hráefni er takmarkað sem þýðir að það er ekki til ótakmarkað magn af því. Ef það klárast er ekki hægt að framleiða meira. Það sem við getum gert til að fara vel með náttúruna og umhverfi okkar er að flokka og endurvinna. Þannig sköpum við mikil verðmæti, spörum náttúruauð- lindir og drögum úr mengun. Alltaf er gott að hafa í huga að: • nota sem minnst. • nota aftur ef hægt er. • skila í endurvinnslu ef ekki er hægt að nota meira. Það er einfalt að flokka. Fyrst þarf að huga að því hvar hægt er að losna við flokkað sorp. Svo þarf að finna hentug ílát fyrir flokkunina, merkja þau og svo bara að byrja að flokka.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=