Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
34 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Umhverfið okkar Bls. 42–43 KAFLINN Í þessum kafla er fjallað um mikilvægi þess að ganga vel um landið okkar af því að við eigum bara eina jörð. Í landinu eru náttúruundur, friðlýst svæði og þjóðgarðar sem við þurfum að læra að ganga vel um. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • gert sér grein fyrir nýtingu og vernd auðlinda og umhverfis, hvernig hver einstaklingur getur lagt sitt af mörkum til verndar, rætt um eigin athafnir og afleiðingar þeirra. • fylgt ferli orsaka og afleiðinga af gerðum manna og bent á leiðir til úrbóta. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna með og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður en haldið er í að lesa og vinna með efnið. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Náttúruvernd, þjóðgarður, náttúruundur, friðlýsing, friðland, fólkvangur, jarðsaga ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Velja myndbrot af vefnum Kvistir á vef MMS og sýna nemendum. Dæmi um myndbrot eru t.d. í jarðfræðihlutanum. https://www1.mms.is/twig/ Myndbrotin heita: Gróðurhúsaáhrif, Hnattræn hlýnun, Mengun vatns, Mengun landsins, Mengun loftsins. Umræður • Hvað er hægt að endurvinna? • Hvað gerir þú til að vernda náttúruna? • Hvaða máli skiptir að halda umhverfinu hreinu? • Hvernig getum við dregið úr neyslu okkar? Matur, föt, bílar, dót og fleira. • Hvað er þjóðgarður?
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=