Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

32 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Atvinnulíf Bls. 40–41 KAFLINN Í þessum kafla er fjallað um störf fólks og hvernig atvinnugreinar flokkast. Einnig er fjallað um fjölbreytilegar samgöngur og þar með talið internetið. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • lýst með dæmum áhrifum tækni og mannlegra athafna á samfélag og umhverfi, gert grein fyrir hugmyndum um samhjálp og velferð og framkvæmd hennar í samfélaginu. • gert sér grein fyrir margbreytileika fjölskyldna og margvíslegum hlutverkum innan þeirra. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna með og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður en haldið er í að lesa og vinna með efnið. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Iðnaður, þjónusta, frumframleiðsla, samgöngur, vélvæðing, nýsköpun, hlunnindi ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Birta á skjá myndir af fólki sem vinnur í ýmsum atvinnugreinum og athuga hvort nemendur þekki störfn (t.d. skrifstofumaður við tölvu; hvaða atvinnu stundar þessi maður? Kona í hvítum slopp; hvaða atvinnu gæti þessi kona stundað? Vinnublað 19. Umræður • Hvað vinnur þetta fólk á myndinni? • Hvaða störf þekkja nemendur? Gera saman lista. • Hvað langar þau til að starfa við þegar þau verða eldri? • Stundum er talað um að störfin sem börn í dag koma til með að vinna í framtíðinni séu ekki ennþá til. Hvaða störf gætu það verið? • Af hverju fer fólki fækkandi sem vinnur við frumframleiðslugreinar? • Til hvers þarf fólk að vinna? Væri eftirsóknavert að vera svo ríkur að maður þyrfti ekki að vinna? Ræðið og rökstyðjið. 20 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665 Atvinnulíf Hvað starfarþetta fólkámyndinni? Ræðiðog finnið saman starfsheitin. _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ VINNUBLAÐ19

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=