Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

31 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Náttúruauðlindir Bls. 38–39 KAFLINN Í þessum kafla verður fjallað um nýtingu auðlinda og hvernig við ættum að umgangast þær þannig að þær verði sjálfbærar. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • gert sér grein fyrir nýtingu og vernd auðlinda og umhverfis og hvernig hver einstaklingur getur lagt sitt af mörkum þeirra til verndar. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna með og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður en haldið er í að lesa og vinna með efnið. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Auðlindir, endurnýtanlegar, hráefni, mannauður, hugvit, rafmagn, uppistöðulón, fossar, rennsli ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Setja á skjá eða koma með í tímann nokkrar myndir af vörutegundum og athuga hvort nemendur þekki hvar varan er unnin, hvaðan auðlindin kemur. Umræður • Hvað er auðlind? Hvernig nýtum við auðlindir jarðarinnar? Hvað notum við auðlindirnar t.d. matur, orka eða annað? Hverjar eru endurnýtanlegar og hverjar ekki? Hvaða auðlindir þurfum við að passa okkur að klára ekki? • Hvað er sjálfbærni? • Hvernig verður rafmagnið til? • Umræður um neyslu og ágang á auðlindir. Hvað getum við gert til að draga úr neyslu t.d. matur, föt, samgöngur, tæki, síma, húsnæði og fleira. Hvað þurfum og hvað langar okkur í en vantar kannski ekki? Hvaða áhrif hefur það ef við göngum illa um jörðina okkar? ÚRVINNSLA 1. Vatnið . Hvernig nýtum við vatnið okkar? Gera lista með öllu því sem nemendum dettur í hug. 2. Spörum vatnið . Hvað getum við gert til að fara betur með vatnið okkar? Gera saman lista eða leiðbeiningar með myndum sem hvetja aðra til að spara vatnið. 3. Hvað er mannauður? Ræða í hópum og komast að því hvað það er. 4. Neysla og umgengni um jörðina okkar . Vinnublað 18. Hvað getum við gert til að passa jörðina okkar? 19 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665 Jörðin okkar Náttúruauðlindirokkareruekki óþrjótandi,viðeigumbaraeina jörð.Þvíþurfumviðað faravel með Jörðinaokkar.Slæmumgengni hefurvondáhrifá jörðina. Hvaðgetumviðgert tilaðvernda Jörðinaokkar? Ræðið saman íhópoggerið listayfirþað semgætihjálpað tilviðaðhalda Jörðinniokkarhreinni. _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ _________________________________________________________________ VINNUBLAÐ18

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=