Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
26 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 12. Vötn, ár, fjöll og jöklar . Skoða fjöll, ár og vötn í nágrenni við sitt bæjarfélag. Velja sér eitt fjall (á, vatn eða jökul) og kynna fyrir bekknum. 13. Ólíkar ár . Fara í muninn á gerðum áa þ.e. lindá, jökulá, dragá. Hópar skipta með sér verkum og kynna sér eina gerð og finna dæmi um þær ár. Kynna fyrir hópnum. 14. Listasýning Mála, leira, sauma, smíða í samráði við verkgreinakennara fjöll/jökla eða annað landslag og halda saman sýningu. 15. Landið mitt í sögunni . Velja landslagslýsingu í sögu eða ævintýri og búa til landslag eftir lýsingunni (samþætting námsgreina, t.d. íslensku eða sögu). 16. Hugtök í landslagi . Skoða hugtök yfir landslag þar sem flókið er að útskýra muninn á því sem er stórt og sumu sem er aðeins minna og svo enn þá minna. Vinnublað 14. Þau teikna myndir sem við eiga frá hinu stærsta til hins minnsta. 17. Bitsboard . Nemendur búa til „spjöld“ í forritinu Bitsboard á ipad, þar sem nemendur velja hugtök tengd landslagi og tengja við myndir af þess konar landslagi. 18. Landslag heitir eitthvað . Nemendur búa til veggspjald sem sýnir landslag. Hugmyndir á útfærslu eru fengnar á pinterest.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=