Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

25 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 ÚRVINNSLA EFNISINS 1. Jarðskjálfta og eldgosa öpp . Nemendur skoða öpp sem sýna eldgos og jarðskjálfta. Til eru þau sem sýna öll eldgos í heiminum og önnur sem sýna hvernig jarðskjálftamælar virka þegar spjaldtölvan er hrist (Seismometer). Eldfjöll https://volcano.si.edu/reports_weekly.cfm 2. Eldgosatilraun . Nemendur gera tilraun til að láta eldfjall gjósa. Það er ekki mikill vandi að útbúa líkan af eldfjalli og fá það til að gjósa. Hafa ber þó í huga að af þessu verður talsvert drullumall og betra er að breiða vel undir, t.d. gamlan vaxdúk og lag af dagblöðum. Byrjað er á að móta líkan af eldfjalli úr saltdeigi, leir eða pappamassa. Inni í gígnum er svo komið fyrir litlu íláti, t.d. litlum plastbikar sem í skal setja 2 msk. sódaduft, nokkra dropa af rauðum og gulum matarlit og 1 msk. af uppþvottalegi. Inn í gíginn má líka setja gos- flösku úr plasti en þá er um tveimur bollum af heitu vatni hellt í flöskuna áður en sódaduftið, sápan og matarliturinn eru sett í. Síðan er ediki hellt út í efna- blönduna í „gígnum“ og þá byrja umbrotin! Þetta er vinsæl tilraun í skólum erlendis og af henni eru fjölmargar lýsingar og myndir á netinu (leitarorð t.d. Volcano Science Project, Baking Soda and Vinegar Volcano). „Eldgosið“ má líka útbúa utandyra og byggja þá fjallið úr mold og sandi eða úr snjó! http://www.sciencebob.com/experiments/volcano.php 3. Líkan af jörðinni okkar . Gera líkan af jörðinni og skrá kjarni, jarðskorpa, möttull. 4. Heiti á landslagi . Skoða opnuna á bls. 26-27. Skoða vel heitin á landslaginu. Vinna í framhaldi af því verkefni í vinnubókinni á bls. 18 og 19. 5. Hvað eru örnefni? Finna örnefni í sínu umhverfi t.d. tengd dýrum, fuglum eða annað. 6. Fjallið mitt, listasýning . Nemendur halda málverkasýningu með málverkum af uppáhalds fjallinu sínu eða jöklinum. 7. Hvað þarf til að fara í fjallgöngu? Nemendur gera saman lista yfir það hvað þarf að taka með í fjallgöngu. Hvernig þarf að vera útbúinn og hvað þarf að taka með í nesti og öryggisbúnað? 8. Gönguferð . Nemendur skipuleggja gönguferð og búa til leiðarlýsingu þar sem sagt er frá landslaginu. 9. Fjallganga . Hópurinn tekur sig saman og fer fjallgöngu. Upplagt er að ræða um landslag á leiðinni, hægt að láta nemendur taka myndir af landslaginu og vinna með myndirnar þegar heim er komið. 10. Líkan af landslagi . Nemendur búa til líkan af landslagi með því að nota steina, mosa, greinar, gras o.fl. úr náttúrunni (líma efnið á plötu). Hægt að gera líkan af nágrenninu eða þekktum stað (t.d. Þingvöllum). 11. Náttúrugripasöfn . Fara með nemendur á sýningu sem sýnir náttúru Íslands t.d. sýninguna um jökla eða eldgos (t.d. í Perlunni) https://perlan.is/wonders-of-iceland/

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=