Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
24 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Umræður • Hvernig varð heimurinn til? Ýmsar kenningar um tilurð heimsins, t.d. trúarlega skýringin, náttúru- vísindin tala um Miklahvell og goðafræðin enn annað. • Hvernig verða lönd til? Er líka landslag í sjónum? • Hvað eigum við að gera ef það verður jarðskjálfti? • Sýna nemendum ljósmyndir af landslagi (á skjávarpa) og láta þá segja frá og lýsa lands- laginu. Hvar er vík, fjörður, fell, mói, hraun? • Hvað er rof? Hvernig breytist landið sífellt? • Landslag – heitir allt eitthvað? Hvenær hættir fjall að vera fjall og verður fell? Landslagið og heiti í landslagi þarf að þjálfa og æfa hugtök. Skemmtilegt verkefni er t.d. að raða í stærðarröð: Þúfa – hóll – fell – fjall eða sker – eyja – land. Sjá vinnublað 14 • Af hverju eru ekki öll fjöll úr sama efni? • Af hverju er vatn mikilvægt? Til hvers er hægt að nota heita vatnið? • Ræða um vatnsból; hvaðan kemur vatnið í krananum heima hjá þér? • Af hverju má ekki drekka vatn beint úr krana í sumum löndum? • Hvað veldur uppgufun vatns úr ám, vötnum og sjó? • Hvernig myndast ský? • Til hvers nýtum við vatn sem finnst í jarðlögum? • Hvernig er hægt að nýta hringrás vatns ofanjarðar til raforkuframleiðslu? • Hvað myndi gerast ef hringrás vatns stöðvaðist einn daginn? • Hvað verður um vatnið sem gufar upp? 15 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665 Landslag Teiknaðu landslagið í rúðurnar fjall fell stapi hóll stöðuvatn tjörn pollur fljót á lækur spræna sjór flói fjörður vík skagi nes tangi eyri meginland eyja sker VINNUBLAÐ14
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=