Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
23 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Myndun og mótun Íslands Bls. 20–35 KAFLINN Í þessum kafla er fjallað um mótun landsins okkar og hvernig það er í sífelldri mótun. Eldgos móta landið og bæta við það meðan rofaöfl sverfa af landinu. Jarðskjálftar og jarðhiti er einkennandi fyrir landið okkar. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • lýst náttúruferlum sem hafa áhrif á land og gróður. • útskýrt hvernig Ísland byggist upp, hvernig landslag þess og jarðvegur breytist. • útskýrt hvar og af hverju helstu náttúruhamfarir verða, sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð. • lesið og skrifað um hugtök í náttúruvísindum. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna með og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður en farið er að lesa og vinna með efnið. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Eldgos, eldfjall, jarðskjálftar, hryggur í landslagi, jarðhiti, ísöld, gos undir jökli, rof, landslag, landgrunn, strandlengja, vatn, hringrás vatns, vötn, ár, fossar, fjöll, bæjarfjöll, tindur, jöklar, skriðjöklar, Mið-Atlantshafshryggurinn, Reykjaneshryggur, landrek, gos undir jökli, rof og rofaöfl ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Kennslustund um innviði jarðar: Nemendur fá allir eina sælgætiskúlu sem er lagskipt. Þeir skoða kúluna, skera hana í sundur og velta fyrir sér hliðstæðu laga í kúlunni við jarðskorpu, möttul og kjarna. • Velja eitt myndbrot af vefnum Kvistir á vef MMS til að sýna nemendum t.d. eldgos eða jarðskjálfta. https://www1.mms.is/twig / Inni á vefnum má finna myndbrot t.d. um: • uppbyggingu jarðar • jarðskjálfta • eldgos, eldfjöll • landrekskenninguna • hringrás vatns • Vinnublað 13 sýnir uppbyggingu jarðar og mætti líka sýna þá mynd og ræða út frá henni hvernig jörðin er samsett. 14 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665 Jörðin okkar Gerð Jarðar Jarðskorpa Möttull Innrikjarni Ytrikjarni Ytrikjarni Innrikjarni VINNUBLAÐ13
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=