Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
21 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 8. Árstíðir. Myndræn/verkleg útfærsla á árstíðum gæti verið líkt og þessar hugmyndir sýna. Hugmyndir eru fengnar af pinterest . 9. Veðurathugun Verkefni 13 á bls. 2 í vinnubókinni er tilvalið í para- eða hópavinnu. Nemendur gera veður- athugun í viku og skrá hjá sér veður- lýsingu eða setja inn tákn fyrir veður. 10. Málþing um umhverfisvernd . Verkefni 6 bls. 14 í vinnubók. Upplagt er að standa fyrir málþingi eða ræða í hópum og skrá hjá sér hentugar lausnir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. ÚRVINNSLA EFNISINS Hvað er náttúra? Náttúra í víðasta skilningi þess orðs nær til hins náttúrlega umhverfis, efnisheims- ins og þeirra náttúrulögmála sem þar gilda. Náttúra vísar til þeirra fyrirbæra sem er að finna í hinu náttúrulega umhverfi og einnig til lífsins sjálfs. Hugtakið náttúra á yfirleitt ekki við um framleidda hluti eða uppbyggð samfélög manna. Náttúran er einnig yfirleitt aðgreind frá hinu yfirskilvitlega. Náttúran nær frá örsmárri veröld atómsins til ómældrar víðáttu alheimsins. Orðið náttúra kemur af latneska orðinu natura sem þýðir innra eðli hluta. Náttúra er í daglegu tali notað um ósnortin svæði, villt dýr, grjót, skóga, strendur og almennt séð um alla þá hluti sem ekki er búið að umbreyta eða skaða með afskiptum mannsins. Yfirleitt er gerður greinarmunur á milli þess sem er náttúrulegt og þess sem er tilbúið og framleitt af manninum. www.natura.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=