Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

19 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Náttúra Íslands Bls. 16–19 KAFLINN Náttúra er í víðum skilningi efnisheimurinn og þau lögmál sem um hann gilda. Oftast er þó náttúra skilgreind sem andstæða þess sem er manngert; þá teljast til dæmis stöðu- vötn og goshverir, fjöll og skógar til náttúrunnar en ekki vegir, brýr og önnur mannvirki. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • lýst náttúruferlum sem hafa áhrif á land og gróður. • áttað sig á hvernig loftslag og gróðurfar hefur áhrif á búsetu og lífsskilyrði. • lýst með dæmum áhrifum tækni og mannlegra athafna á samfélag og umhverfi. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna með og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður en haldið er í að lesa og vinna með efnið. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Náttúra, veður, loftslag, loftstraumur, ár, vötn, jöklar, fjöll, gróðurhúsalofttegundir, loftslagsbreytingar, breiddargráður, árstíðir, sólstöður, jafndægur, norðurljós, uppskera ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Skipta nemendum í hópa og láta þá hjálpast að við að finna atriði tengd hugtakinu NÁTTÚRA. Hvað er náttúra? Þau skrifa eitt orð á miða og líma á töfluna – út um allt – svo er farið að flokka. Hvað er náttúra? • Velja myndbrot um veður af vefnum Kvistir á vef MMS og sýna nemendum. https://www1.mms.is/twig/ Myndbrotin má finna undir jarðfræðihlutanum og heita Veðrakerfin, Rigningin getur verið fjölbreytt og Vindakerfin. Umræður • Hversu miklu máli skiptir það hvernig veðrið er? Hefur veður áhrif á skapið í manni eða annað? • Hvað er veður? Hvernig er veður á Íslandi öðruvísi en annars staðar? • Hvað eru loftslagsbreytingar og gróðurhúsaáhrif? Hvaða áhrif hefur það á náttúruna ef hlýnar mikið á jörðinni? Hvað með fólkið? Dýrin? Veðrið? Náttúruhamfarir? • Árstíðir, af hverju verða þær? Hver er uppáhalds árstíð nemenda? Af hverju? • Hvað eru norðurljós? Útlendingar koma hingað til að skoða norðurljósin; af hverju hingað til Íslands? Hvenær er hægt að sjá norðurljósin? • Hvað finnst ykkur gott við veðrið á Íslandi? Hvað er slæmt við það? • Horfa á veðurfréttaþátt á RÚV og ræða hvernig veðurspáin var. Hvað sagði veður- fræðingurinn um veðurspána í þinni heimabyggð? • Eruð þið klædd eftir veðri? Hvernig ættuð þið að vera klædd miðað við veðrið í dag? • Loftslagsbreytingar hafa áhrif á stærð jökla og að þeir hopa og minnka. Af hverju er það?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=