Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

18 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 ÚRVINNSLA EFNISINS 1. Forsetar Íslands . Nemendur vinna saman verkefni 9 í vinnubókinni. Upplýsingar um alla forseta Íslands frá upphafi. Útbúa kynningu á þeim, hvað þeir heita, hvenær þeir voru við völd og fleira sem þau finna um þá. Útbúa jafnvel veggspjöld fyrir hvern og einn. 2. Fánar kveikja alltaf áhuga. Eitt verkefni gæti verið að nemendur velja sér fána einhvers lands og hjálpast að við að perla hann tvö og tvö. Nemendur segja frá hvaða fána þau völdu og kynna fyrir hópunum það land lítillega. Hvar það er og annað sem þau geta leitað sér upplýsinga um. Bekkurinn gæti síðan endað á að búa til óróa með öllum perluðu fánunumm. 3. Við búum á Íslandi . Verkefni 10 og 14 í vinnubók mætti taka saman og vinna með hóp nemenda og taka saman. Hvað er gott og hvað er ekki gott við að búa á Íslandi? 4. Á Ísland að heita Ísland ? Verkefni 12 væri líka hægt að vinna sem hópur – finna nýtt nafn á Ísland.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=