Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
17 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Umræður • Hvað er að vera Íslendingur? • Staðreyndir um Ísland, hvað er það stórt? Hvað búa margir á landinu? • Þjóðhátíðardagur okkar er 17. júní. Hvernig höldum við upp á þann dag? Af hverju eru þjóðir með þjóðhátíðardaga? • Þekkja nemendur þjóðhátíðardaga annarra þjóða? Þeir hjálpast að við að finna þjóðhátíðardaga allra í bekknum og skoða saman hvernig haldið er upp á þann dag hjá hverri þjóð? • Hver stjórnar á Íslandi? Hvað heitir forsetinn og hvað heitir forsætisráðherrann okkar? Hvað gerir forsetinn? Hvar hafa nemendur séð forsetann? Þarf forsetinn að vera karl? • Umræður um íslenska fánann. Hvernig var fáninn áður fyrr? Til hvers þarf þjóð að hafa fána? Hvar og hvenær notum við íslenska fánann? Hvaða reglur gilda um notkun á fánanum? Hvaða dagar eru fánadagar? • Hvernig er þjóðsöngur Íslendinga? Láta nemendur syngja þjóðsönginn (nota texta og undirspil af Youtube). • Hvar býr fólkið á Íslandi? Af hverju búa svona fáir á hálendi Íslands? Af hverju búa flestir við sjóinn? Af hverju búa flestir á höfuðborgarsvæðinu? (SV-landi). • Hvernig getum við skipt Íslandi í svæði? Ræða t.d. um andstæðurnar þéttbýli/ dreifbýli ólíka skiptingu landsins. • Núna er landinu skipt í sveitarfélög en áður voru hér sýslur. Hvað hétu þær? Vinnublað 9 sýnir sveitarfélög á Íslandi og vinnublað 10 sýnir gamla skiptingu landsins í sýslur. • 10 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665 Sveitarfélög VINNUBLAÐ9 11 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665 Sýslur áður fyrr VINNUBLAÐ10
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=