Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

10 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Kort og kortalestur Bls. 6–11 KAFLINN Í þessum kafla er unnið að því að efla kortalæsi nemenda. Kortavinna er að stórum hluta orðin stafræn en þó er mikilvægt að nemendur læri að fletta upp í kortabókum og lesa prentuð kort. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • notað kort og gröf til að afla sér upplýsinga. • gert grein fyrir einkennum og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu og sögu landsins, breytilegrar menningar, trúar og lífsviðhorfa. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður kaflinn er lesinn. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Landakort, áttir, höfuðáttir, mælikvarði, ólík kort, hæð, litir og tákn á kortum, GPS ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Varpa upp mynd af opnunni. Hvað sjá nemendur á myndinni? Þar sem snjór er yfir öllu sést vel hvernig landið liggur, dalir, fjöll og strandlengjan. Umræður • Hvað er sérstakt við lögun landsins? • Hvað vita þau um landið? Skrá það sem nemendur nefna. • Hvers vegna er ekki snjór alls staðar á myndinni? • Af hverju sjáum við aðeins tvö vötn á myndinni? (Þingvallavatn og Löginn). • Hvernig er veðrið á þessari mynd? (skýjafar, hitastig, árstíð). ÚRVINNSLA EFNISINS • Hvernig skoðum við heiminn? • Varpa upp myndum af allskonar kortum? Hvernig kort er þetta? • Gaman væri að fá nemendur til að teikna útlínur Íslands á A4 blað án þess að hafa kortið fyrir framan sig. Hvernig tókst þeim að muna hvernig útlínur landsins eru? Útlínukort af Íslandi er t.d. hægt að finna á vinnublaði 1. 1 Ísland VINNUBLAÐ1 Íslandhérbúumvið |Vinnublöð |©Menntamálastofnun2019 |7665

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=