Í lofti

Til kennara Tilgangur þessa bókaflokks, sem er alls átta bækur, er að vekja lestrar- áhuga nemenda og þjálfa þá í að lesa orð með samhljóðasamböndum. Við gerð bókarinnar Í lofti eru sérstaklega valin orð með samhljóðum fyrir framan r og rj í upphafi orða , þ.e. orð eins og bréf, frændi, spranga, grjót. Forspá/umræður. Nemendur og kennari skoða bókina saman og ræða efni hennar út frá titli, kaflaheitum og myndum. Leggja skal áherslu á að nota orðin sem koma fyrir í textanum og ræða mismunandi leiki barna eftir því hvar þau búa á landinu, svo og hættur sem geta fylgt sumun leikjum. Orðaforði. Í sögunni eru nokkur framandi orð sem þarf að útskýra. Dæmi: lúga, tryggur, sprang, príla, drangar, spranga, í loftköstum. Sam- heiti og andheiti fundin ef við á. Hljóðgreining. Kennari segir orð, barnið hlustar eftir tilteknu sam- hljóðasambandi. Hvar er það í orðinu? Æskilegt að nota fleiri orð en eru í textanum. Orðalestur. Kennari skrifar orðin á lítil spjöld og æfir nemendur í að lesa þau stök. Búta má orðin í lesbúta, dæmi: fræn-di, bro-sir, hra-par . Sum börn þurfa æfingu í að lesa önnur orð í textanum, sjá orðakassa á bls. 16. Þar eru tekin út orð með tvöföldum samhljóða, samsett orð (sjá einnig Til kennara: Úrvinnsla í þriðju og fjórðu bók) og orð með samhljóðasamböndum úr fyrri bókum. Lestur. Sagan lesin. Vakin athygli á spurningunum neðst á hverri síðu sem eru ætlaðar til að skerpa athygli og lesskilning. Ritun. Nemandi skrifar stöku orðin í litla bók eftir að hafa lesið þau tvisvar til þrisvar sinnum. Sumir geta e.t.v. búið til setningar með einu eða tveimur orðum og myndskreytt. Þetta getur verið skemmtilegt heima- eða samvinnuverkefni. Foreldri eða skólafélagi les upp stöku orðin, barnið skrifar eftir upplestri og svo er farið sameiginlega yfir á eftir. Á vef Menntamálastofnunar eru verkefnablöð með sögunni. Smellt er á Námsefni á vef og valið Verkefni til útprentunar .

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=