Í gjótu

Til kennara Tilgangur þessa bókaflokks, sem er alls átta bækur, er að vekja lestrar- áhuga nemenda og þjálfa þá í að lesa orð með samhljóðasamböndum. Við gerð bókarinnar Í gjótu eru sérstaklega valin orð með samhljóðum fyrir framan lj og j í upphafi orða , þ.e. orð eins og gljúfrið, hljótum, fjallið, hjúkrar . Forspá/umræður . Nemendur og kennari skoða bókina saman og ræða efni hennar út frá titli, kaflaheitum og myndum. Leggja skal áherslu á að nota orðin sem koma fyrir í textanum. Orðaforði . Í sögunni eru nokkur framandi orð sem þarf að útskýra. Dæmi: bjástra, gljúfur, leiðangur, hjalli, gjóta. Einnig má finna fleiri orð yfir fugla. Hljóðgreining . Kennari segir orð, barnið hlustar eftir tilteknu sam- hljóðasambandi. Hvar er það í orðinu? Æskilegt að nota fleiri orð en eru í textanum. Orðalestur . Kennari skrifar orðin á lítil spjöld og æfir nemendur í að lesa þau stök. Búta má orðin í lesbúta, dæmi: hlau-pa, Kla-ra . Sum börn þurfa æfingu í að lesa önnur orð í textanum, sjá orðakassa á bls. 16. Þar eru tekin út samsett orð (sjá einnig Til kennara: Úrvinnsla í þriðju og fjórðu bók ), orð með samhljóðasamböndum sem komu fyrir í fimmtu bók og loks slík orð sem æfð verða sérstaklega í sjöundu bók. Lestur . Sagan lesin. Vakin athygli á spurningunum neðst á hverri síðu sem eru ætlaðar til að skerpa athygli og lesskilning. Ritun . Nemandi skrifar stöku orðin í litla bók eftir að hafa lesið þau tvisvar til þrisvar sinnum. Sumir geta e.t.v. búið til setningar með einu eða tveimur orðum og myndskreytt. Venjulega er nóg fyrir barnið að fást við eina opnu í senn. Þetta getur líka verið skemmtilegt heima- eða samvinnuverkefni. Foreldri eða skólafélagi les upp stöku orðin, barnið skrifar eftir upplestri og svo er farið sameiginlega yfir á eftir. Á vef Menntamálastofnunar eru verkefnablöð með sögunni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=