Hvalir - Milli himins og jarðar

. 5 Hvaða önnur dýr þekkir þú sem eru straumlínulöguð? Hvalir anda með lungum alveg eins og við. Þeir geta ekki andað í kafi og verða að koma upp á yfirborðið til að ná sér í súrefni. Sumir hvalir geta verið mjög lengi í kafi, í klukkustund eða meira. Allir hvalir eru með nasirnar ofan á höfðinu. Þær kallast blástursop. Það er hentugt, því þá þurfa þeir aðeins að lyfta efsta hluta höfuðsins upp úr hafinu til að anda. Hvalir synda í sjónum og geta ekki lifað á landi. En hvers konar dýr eru hvalir? bægsli hvalspik blástursop trjóna

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=