Hvalir - Milli himins og jarðar

40035 Hvalir er þriðja bókin í lestrarflokknum Milli himins og jarðar. Í efninu er reynt að höfða til áhugamála og hugðarefna nemenda á yngsta stigi grunnskólans og er það ætlað þeim sem hafa náð tökum á undirstöðuatriðum lestrar. Spurningar neðst á blaðsíðum eru hugsaðar til þess að staldra við og ræða það sem lesið var um. Aftast í bókinni eru nokkur verkefni sem nemendur geta unnið í samvinnu eða sjálfstætt. Bókin er líka til sem rafbók á vefsíðu Menntamálastofnunar www.mms.is Höfundur er Harpa Jónsdóttir. Myndir teiknaði Bergrún Íris Sævarsdóttir. Hvalir

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=