Milli himins og jarðar - Humlur

Til nemenda Þessi bók fjallar um humlur. Sumir kalla þær hunangsflugur og aðrir randaflugur. Í bókinni getur þú lesið um samvinnu humla og blóma, hvað humlur éta og hvað þær gera á veturna. Þú getur líka lesið um drottningar, flugur í vinnu, býflugur og flugugubb! Áður en þú byrjar að lesa er gott að fletta bókinni, skoða myndir og lesa fyrirsagnir. Neðst á hverri opnu eru spurningar. Þú getur rætt þær við einhvern eða reynt að svara þeim í huganum. Á sumum blaðsíðum er spurning innan í fluguvæng. Til að finna svarið skaltu fletta á næstu síðu og lesa textann. Góða skemmtun!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=