Hugtakasafn í stærðfræði | 9253 Menntamálastofnun 2019 | © Jón Þorvarðarson og Kristín Bjarnadóttir 73 þversögn fullyrðing sem virðist byggjast á augljósum sannindum og traustum rökum leiðir, þrátt fyrir allt, til mótsagnar eða fráleitrar niðurstöðu þyngd togkraftur jarðar í massa, mælieining Newton, N; togkraftur í 1 kg massa er 9,8 N; þyngd er oft notuð í merkingunni massi þýði heildarsafn eininga ─ t.d. einstaklinga, viðburða, bygginga eða farartækja ─ með tiltekna og vel skilgreinda eiginleika; úrtök eru oft valin úr þýði til að afla upplýsinga um þýðið; dæmi um þýði er „grunnskólanemendur á Íslandi“ Ö öfugt hlutfall tvær stærðir, x og y, standa í öfugu hlutfalli hvor við aðra ef margfeldi þeirra er x ∙ y = k þar sem k er fasti; má einnig skrifa sem y = k/x þar sem x ≠ 0 önnur ferningsreglan (a – b)2 = a2 – 2ab + b2 þar sem a og b eru ótilgreindar tölur
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=