Hugrún – Sögur og samræðuæfingar

43 Makleg málagjöld Hver eru makleg málagjöld fyrir þann sem … svindlar á prófi? leggur aðra í einelti? segir frá leyndarmáli besta vinar síns? keyrir of hratt? stelur einhverju? lemur einhvern? drepur annað fólk? Að breyta heiminum Getur átta ára barn breytt heiminum? Getur kennari breytt heiminum? Getur forsætisráðherra Íslands breytt heiminum? Getur forseti Bandaríkjanna breytt heiminum? Geta bækur breytt heiminum? Geta nýjar uppgötvanir í læknisfræði breytt heiminum? Geta hugmyndir breytt heiminum? Hvort ætli sé erfiðara; að breyta heiminum eða breyta sjálfum sér? Ofurhetjur Hvaða yfirnáttúrulega eiginleika vildirðu hafa ef þú værir ofurhetja? Hverjum myndirðu hjálpa ef þú værir ofurhetja?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=