Lín (léreft) var unnið úr stráum plöntu sem kallast hör. Algengasta efnið var þó vaðmál sem var unnið úr ull. Söl eru þörungar sem finnast neðst í fjörum. Sölin eru mjög næringarrík og voru söxuð út í grauta og brauð eða þurrkuð og tuggin eins og snakk. Drafli er eins konar mjólkurhlaup sem verður að osti. Osturinn var líklega mjúkur og svolítið súr á bragðið. Bjarmaland var þar sem nú er Norðvestur hluti Rússlands, kringum Hvítahaf. Þangað sigldu norrænir víkingar. Mamma Hámundar heljarskinns, eiginmanns Ingunnar, var kóngsdóttir frá Bjarmalandi. Auður djúpúðga, einnig nefnd Unnur djúpúðga, kemur fyrir í Landnámu og Íslendingabók. Þar er hún sögð vera fyrst til að nema land á Vesturlandi. Hún lét smíða glæsilegan knörr í leyni og sigldi með fjölda manns frá Írlandi til Íslands. Viðurnefnið djúpúðga merkir hin vitra. Hvernig kona heldur þú að Auður hafi verið? Hvaða eiginleika hefur hún þurft að hafa til að stýra svona leiðangri? VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 2. KAFLA 19
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=