Varúð - Hér býr ... Vampíra

46 „Hvæsi,“ segi ég og lýsi í kringummig. „Hvæsi, hvar ertu?“ Mjálmið virðist koma innan úr stórum dökkum kassa. “Þarna inni,“ segir Marius og rígheldur í mig. Fyrir framan okkur er langur kassi upp á rönd. Stórt trébox, frekar undarlegt í laginu. „Hvað ef þetta er kista. Svona vampírukista,“ spyr Marius stressaður. „Það er þá bara í stíl við allt hitt. Ég sagði þér það. Konan sem býr hérna safnar vampírudóti. Þetta gæti þess vegna verið úr hrekkjavökubúð. Hún hefur örugglega pantað þetta á netinu.“ Nú mjálmar Hvæsi enn hærra. Það fer ekki á milli mála að kötturinn minn er lokaður inni í vampíru- kistu. Lokið á kistunni er þakið þykkum köngulóar- vefjum. Ég toga ermina á peysunni yfir höndina og teygi hana fram til að opna kistuna. Þurr mold hrynur fram á gólfið. Inni í kistunni sé ég Hvæsa. Hann malar makindalega í fanginu á … VAMPÍRU!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=