Varúð - Hér býr ... Vampíra

27 MÖRG HUNDRUÐ ÁRA GÖMUL MANNESKJA? „Sérðu Hvæsa?“ spyr ég og held símanum þannig að ljósið lýsir upp herbergið. Við erum stödd í stórri stofu. Á miðju gólfinu er langt dökkt borðstofuborð. Við borðið stendur aðeins einn stóll semminnir á hásæti. „Skrítið,“ segir Marius. „Bara einn stóll við svona stórt borð. Það hlýtur að þýða að hér búi bara ein manneskja. Sem fær mjög fáa gesti.“ „Mhm,“ samþykki ég og svipast um eftir Hvæsa. „Þessi manneskja er með alveg einstakan smekk,“ heldur Marius áfram. „Bæði borðið og stóllinn eru antíkmunir, líklega frá miðöldum.“ „Um hvað ertu eiginlega að tala. Hvað er antík?“ Mig langar ekkert að hlusta á fyrirlestur um húsgögn akkúrat núna. En það er fínt að Marius

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=