Varúð - Hér býr ... Vampíra

24 fara inn til fólks í leyfisleysi. Mér finnst bara betra að fylgja reglum og vera kurteis.“ „Við erummjög ólík,“ svara ég kuldalega. Ég þarf að finna köttinn og hef engan tíma fyrir almennilegheit. Marius er sem betur fer hættur að tala. En þegar hann þegir heyri ég marrið í gólfinu undan hverju skrefi. Við höldum okkur á neðri hæðinni. Í stigarýminu eru þrjár hurðir. Ein til vinstri, ein beint af augum, til hliðar við stigann og ein til hægri. „Veldu hurð,“ segi ég við Marius, eins og þetta sé leikur. „Ekki láta mig velja,“ svarar hann og horfir biðjandi augum á mig. Ég horfi á hurðirnar. Það er engin leið að vita hvað leynist í herbergjunum. Hurðin til vinstri hefur engan hurðarhún og er biksvört. Sú sem er beint af augum er undarlega smá og rauð- máluð. Til hægri er hins vegar tvöföld tréhurð með stórum glansandi hurðarhúnum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=