Varúð - Hér býr ... Vampíra

17 „Nei … það er rétt,“ svarar Marius og horfir niður. Nú myndi mamma segja mér að biðjast afsökunar. En hún myndi fyrst segja mér að sækja Hvæsa. Það er mikilvægara en afsökunarbeiðnin. „Við þurfum að fara inn í húsið,“ segi ég ákveðin. Marius strýkur höndinni eftir rammgerðu grind- verki. Háar járnstangirnar voru einhvern tíma svartmálaðar en eru farnar að flagna. Hver stöng er eins og spjót, með beittum oddi. Kannski á grindverkið að vara fólk við. Hingað er enginn velkominn.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=