Varúð - Hér býr ... Vampíra

15 LEÐURBLÖKUBANK Augu mín leita frá gróðurflækjunni að eyðilegu húsinu. Þetta er elsta og skrítnasta húsið í hverfinu. Neglt hefur verið fyrir alla glugga með gömlum spýtum. Líklega hefur enginn búið í húsinu í mörg ár. „Ég f … f … fer ekki inn í þetta hús,“ segir Marius skjálfandi röddu. „Víst. Þú slepptir kettinummínum út. Við verðum að sækja hann.“ Marius hugsar sig um. „Hann hlýtur að skila sér aftur.“ „Ætlar þú að segja mömmu minni að þú hafir týnt besta vini hennar?“ „Ha? Er kötturinn besti vinur mömmu þinnar?“ Marius horfir á mig eins ég sé asni. Ég verð að útskýra þetta.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=