Hér býr umskiptingur

72 Um leið og ég sleppi orðinu opnar Hvæsi græn augun. Hann lítur á mig með lymskulegu augnaráði, eins og hann viti eitthvað sem ég veit ekki. Eins og ævintýrum okkar Mariusar sé ekki alveg lokið. Eins og enn bíði okkar eitthvað æsispennandi og stórhættulegt ævintýri. Eins gott að safna kröftum, hugsa ég og teygi mig í sjónvarpsfjarstýringuna. Á skjánum spilast eldgömul kvikmynd um Frankenstein. „Þetta gæti aldrei gerst,“ segir Marius. „Ekki vera of viss,“ svara ég og lít á Hvæsa. „Aldrei að segja aldrei.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=