Varúð - Hér býr jötunn

7 SNÚÐUR OG LÆTI „Hvert næst Marius?“ spyr Þór og horfir á mig stórum augum. Andlit hans er þakið súkkulaði eftir stutt stopp í bakaríinu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem okkur er hent út vegna látanna í litla bróður mínum. „Við getum klárað snúðinn heima hjá Mörtu. Hún býr í næstu götu.“ Ég strýk lubbann frá andliti Þórs. „Á hún djús? Mig langar í djús. Nei, kókómjólk eða heitt kakó! Með sykurpúðum!“ Þór valhoppar glaður eftir stéttinni. Hann hefur steingleymt því hvernig karlinn í bakaríinu skammaði okkur fyrir örfáummínútum. Tárin eru þornuð og atvikið því bara súkkulaðihúðuð minning. „Hún á örugglega eitthvað að drekka. Allavega vatn. Sjáðu, hér er húsið hennar. Þetta græna.“ Við Þór leiðumst upp stigann. Pínulítil höndin hverfur næstum í lófa mínum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=